Sælir leikmenn og foreldrar,
Fyrst langar mig að þakka foreldrum fyrir mætinguna á foreldrafundinn fyrr í kvöld vegna EYJAMÓTSINS 2012. Nauðsynlegar umræður og margt sem þurfti að huga að varðandi þetta stórmót. En fótboltinn heldur áfram og við þurfum að gera nokkrar breytingar næstu daga vegna utanaðkomandi aðstæðna. Taflan næstu daga ætti því að líta svona út:
Fimmtudagur:
- Yngra ár: Klukkan 16:00 - 17:00 í Risanum
- Eldra ár: Klukkan 17:00 - 18:00 í Risanum
Föstudagur:
- Yngra ár: Klukkan 17:00 - 18:00 í Bjarkarsalnum (ATH BREYTTA STAÐSETNINGU)
- Eldra ár: Klukkan 18:00 - 19:00 í Bjarkarsalnum (ATH BREYTTA STAÐSETNINGU)*
Sunnudagur:
ALLUR HÓPUR: Klukkan 13:00 - 14:00 á Ásvöllum (ATH BREYTUR TÍMI)**
* Breytingar vegna slæmrar veðurspár og því færum við okkur inní Bjarksalinn til að missa ekki úr æfingu. Gervigrasið okkar getur reynst hættulegt í miklu frosti og snjó.
** Breytingar vegna leiks hjá 3.flokks FH. Við flýtum því okkar æfingu um klukkustund og verðum því frá 13:00 -14:00.
Okkur hefur boðist glæsilegt boð frá 7.flokki karla í FH um að fara með þeim í JÓLABÍÓ. Auglýsinguna frá þeim má sjá hér fyrir neðan.
7.FLOKKUR KARLA FH BÝÐUR TIL JÓLABÍÓS!!
Þá er komið að einni stærstu fjáröflun flokksins fyrir Norðurálsmótið 2012. Forsýning á glænýrri mynd í Smárabíó á sunnudaginn 27.nóvember klukkan 11:00. Myndin heitirArthur bjargar jólunum og er stórskemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna sem afhjúpar loksins leyndarmálið sem öll börn hafa velt fyrir sér; Hvernig í ósköpunum fer jólasveinninn að því að afhenda allar þessar gjafir á einni nóttu??? Þetta er teiknimynd með íslensku tali.
Við höfum allan stóra salinn fyrir okkur og er því um að gera að fjölmenna og gera sér glaðan dag. Miðarnir kosta 1.000 krónur og verða þeir afhentir á föstudaginn 25.nóvember í íþróttahúsi Setbergsskóla á milli 16:30 og 17:30 gegn greiðslu (peningar - ekki kort). Vinsamlegast reynið að tilkynna fjölda miða á netfangið atlih@karlsson.is eða í síma 822-9225 fyrir klukkan 15:00, föstudaginn 25.nóvember.
Jólakveðja frá foreldraráði 7.flokks karla FH.